Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki
[][1] Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Heimilt er að sækja um styrk til verkefna sem umsækjandi er þegar byrjaður að vinna í. Engar sérstakar áherslur verða settar á þessu ári, en tekið verður mið af eftirfarandi við afgreiðslu umsókna (sbr. 5. grein menningarsamnings fyrir árið 2010):
2. Efla nýsköpun í verkefnum tengdum menningu.
3. Atvinnutækifærum fjölgi á menningarsviðinu.
4. Styðja við menningartengda ferðaþjónustu.
Menningarráðið mun hvorki veita rekstrar-, stofnkostnaðar- né endurbótastyrki. Ekki verður heldur styrkt skráning á menningarminjum, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíðir, almennar samkomur, safnaðarstarf og hefðbundið menningarstarf innan skóla. Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2010. Smellið hér: [Umsóknareyðublað][2] Ætlunin er að tilkynna um úthlutun í apríl 2010. Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Suðurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðu Menningarráðs [www.sunnanmenning.is][1] . Allar nánari upplýsingar veitir Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands, í síma 480-8207, 896-7511 eða með tölvupósti . Menningarfulltrúi verður til viðtals í öllum sveitarfélögum . Námskeið í umsóknargerð fer fram 25. febrúar í umsjón Fræðslunets Suðurlands. Umsóknir skal senda, í tölvupósti á menning@sudurland.is eða í ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Suðurlands, Austurvegi 56, 800 Selfoss. [1]: http://sunnanmenning.is/index.php [2]: http://hveragerdi.is/content/files/public/_PDF/Menningarm%C3%A1l/styrkir%20menningarr%C3%A1%C3%B0.pdf
fleiri fréttir
-
18. feb 2019Fjölsóttur foreldrafundur
-
05. feb 2019Leikfélag Hveragerðis
-
04. feb 2019Loksins komið skautasvell
-
30. jan 2019Ánægja íbúa mest í Hveragerði
-
29. jan 2019Sýningin Huglæg rými í Listasafn Árnesinga
-
25. jan 2019Vinningshafar í jólagluggaleiknum
-
24. jan 2019Hækkuðu fasteignamati mætt með lækkaðri álagningu
-
24. jan 2019Flokkun úrgangs er forgangsmál
-
21. jan 2019Lífshlaupið 6. feb 2019
-
09. jan 2019Fréttatilkynning frá Sorpstöð Suðurlands