Útboð á byggingarrétti íbúðarlóða í Hveragerði
Hveragerðisbær óskar hér með eftir tilboðum í byggingarrétt á 9 einbýlishúsalóðum við Smyrlaheiði og 9 parhúsalóðum, 3 þriggja íbúða og 3 fjögurra íbúða raðhúsalóðum við Dalsbrún. Gert er ráð fyrir að lóðir við Smyrlaheiði verði byggingarhæfar í júlí nk. og lóðir við Dalsbrún í október nk.
Um sölu á byggingarrétti í Hveragerði gilda ákvæði samþykktar fyrir gatnagerðargjald, sölu byggingarréttar o.fl. sem samþykkt var í bæjarstjórn 26. apríl sl. Gatnagerðargjöld, stofngjöld veitna og þjónustugjöld tæknideildar eru ekki hluti af andvirði byggingarréttar og skulu því ekki vera innifalin í tilboðsupphæð bjóðenda.
Bjóðendum er heimilt að gera tilboð í byggingarrétt á fleiri lóðum en einni. Þó verður að öllu jöfnu miðað við að sami aðili fái ekki fleiri en einn byggingarrétt í sinn hlut. Bæjarstjórn áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboðum sem er eða hafna öllum.
Tilboðum skal skilað í lokuðu umslagi á skrifstofu Hveragerðisbæjar, Sunnumörk 2, 810 Hveragerði, ekki síðar en mánudaginn 28. maí nk. kl. 11:00 og verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim tilboðsgjöfum sem þess óska.
Útboðsgögn og nánari upplýsingar má nálgast hjá skipulags- og byggingarfulltrúa að Sunnumörk 2, Hveragerði eða hér fyrir neðan.
Smyrlaheiði deiliskipulag - byggingarskilmálar - yfirlitsmynd
Dalsbrún deiliskipulag - byggingarskilmálar - yfirlitsmynd
Lóðalisti - upplýsingar um verð
Tilboð í byggingarrétt (eyðublað)
fleiri fréttir
-
23. apr 2018Góð heimsókn á bæjarskrifstofu
-
20. apr 2018Umhverfisverðlaunin til nemenda 7. bekkjar
-
17. apr 2018Auka græn tunna ókeypis út árið ef þarf
-
17. apr 2018Sumri fagnað í blómabænum
-
27. mar 2018Suðurlandsmeistarar í skák
-
26. mar 2018Páskar í Hveragerði
-
20. mar 2018Handverk og hugvit með tryggt húsnæði
-
14. mar 2018Smásögur Kiefer og Freydísar verðlaunaðar
-
07. mar 2018Nýjar og endurbættar stefnur samþykktar
-
20. feb 2018Bungubrekka skal húsið heita