Þjónustusamningur við HSSH endurnýjaður
skrifað 18. jan 2012
Samningnum er ætlað að tryggja enn frekar starfsemi HSSH, enda er bæjarstjórn Hveragerðisbæjar þeirrar skoðunar að félagið sinni öflugu félags- og forvarnarstarfi ásamt því að vera mikilvægur hlekkur í öryggismálum bæjarbúa. Heildarverðmæti samningsins eru um 9 milljónir.
Samningi þessum er ætlað að efla samstarf bæjaryfirvalda í Hveragerðisbæ og Hjálparsveitar skáta í Hveragerði (HSSH) og þannig tryggja öflugt almannavarna, félags- og öryggisstarf í Hveragerði. Sveitin mun áfram standa fyrir flugeldasýningum við hátíðleg tækifæri ásamt því að sinna gæslu og umferðastjórnun á bæjarhátíðum. HSSH stendur fyrir ýmiskonar fræðsluverkefnum á sviði forvarna fyrir ýmsa aldurshópa. Samningurinn gildir til ársloka 2014.
Fleiri fréttir
-
22. feb 2012Öskudagsfjör
-
16. feb 2012Standa eða bíða eftir næsta vagni
-
16. feb 2012Framkvæmdir við Hamarshöll komnar í gang
-
13. feb 2012Útsvarsliðið hefur lokið keppni
-
07. feb 2012Dagur leikskólans í Undralandi
-
06. feb 2012Leikskóladagurinn haldinn hátíðlegur
-
03. feb 2012Mikil ánægja með "Skólahreysti"
-
31. jan 2012Hvergerðingar Norðurlandameistarar
-
17. jan 2012Söngatriði Skjálftaskjóls áfram í USSS