Starfsmenn bæjarins fá frítt í sund
skrifað 16. apr 2019

Bæjarstjórn samþykkti á síðasta fundi sínum að veita starfsmönnum Hveragerðisbæjar gjaldfrjálsan aðgang að Sundlauginni Laugaskarði frá 1. júní nk. samkvæmt vinnureglum.
Starfsfólk stofnana bæjarins hafa óskað eftir hvata til að stunda hreyfingu og er gjaldfrjáls aðgangur að sundlauginni fríðindi sem stuðla að líkamlegri og andlegri heilsu.
Hveragerðisbær hefur ákveðið að vinna markvisst að heilsueflingu þeirra sem í bænum búa og starfsmanna sinna. Holla valið þarf að vera eins auðvelt og kostur er s.s. að hreyfa sig, borða hollt, rækta geðið og ástunda grænan lífsstíl á sama tíma og spornað er gegn áhættuhegðun s.s. neyslu tóbaks, áfengis og annarra vímuefna.
Eldri fréttir
-
11. des 2019Úthlutun dvalar í listamannahúsinu Varmahlíð
-
09. des 2019Röskun á starfsemi bæjarins vegna veðurútlits
-
22. nóv 2019Jól í bæ - viðburðir
-
20. nóv 2019Flýtingu framkvæmda fagnað
-
20. nóv 2019Mun beiðni um viðræður verða samþykkt ?
-
18. nóv 2019Ás-Grundarsvæði, lýsing á deiliskipulagsáætlun.
-
05. nóv 2019Auka á aðgengi að þráðlausu neti
-
11. okt 2019Úthlutun fjölbýlishúsa í Kambalandi
-
09. okt 2019Aukin og betri þjónusta fyrir eldri íbúa Hveragerðisbæjar
-
07. okt 2019Það er einfalt að flokka lífrænt