Suðurland í sókn
Laugardaginn 17. mars nk. munu Sunnlendingar annað árið í röð fylkja liði í Ráðhús Reykjavíkur til að kynna það sem efst er á baugi í landshlutanum með sérstakri Suðlandssýningu. Sýningin ber yfirskriftina Suðurland í sókn.
Það er Atvinnuþróunarfélag Suðurland og Markaðsstofa Suðurlands sem standa að þessu verkefni ásamt fjölda annarra þátttakenda s.s. ferðamálafulltrúum, klasaverkefnum, sveitarfélögum, handverkshópum, ferðaþjónustuaðilum af Suðurlandi o.fl. Suðurland er fjölsóttur staður en með sýningu sem þessari viljum við tefla fram nýjum sjónarhornum og spegla allan fjölbreytileikann á svæðinu. Með hækkandi sól vaknar ferðaþráin og gerir tímabært að huga að ferðalögum sumarsins. Rómuð fegurð, úrval þjónustu og nálægð við höfuðborgarsvæðið og aðra landshluta gerir Suðurland að einstökum áfangastað til hvers kyns útivistar. Nýr Suðurstrandarvegur og uppbygging vega í Uppsveitum Árnessýslu eykur enn á alla þá möguleika sem fyrir eru, líka utan alfaraleiðar. Sýningin í Ráðhúsi Reykjavíkur er opin fyrir fagaðila á föstudaginn kemur frá klukkan 17:00-19:00 og almenningi frá klukkan 12:00 til 17:00 á laugardaginn.
Á meðfylgandi mynd má sjá Sigurdísi frá Upplýsingamiðstöð Suðurlands, Aldísi bæjarstjóra og Jóhönnu Margréti menningar- og frístundafulltrúa á sýningunni 2012.
fleiri fréttir
-
17. maí 2013Sýningin "Blóm í bæ" verður haldin árið 2014
-
17. maí 2013Danskt kaffihús í Grunnskólanum
-
17. maí 2013Regnbogafáni dreginn að húni
-
14. maí 2013Vinnuskóli og sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni
-
10. maí 2013Góð niðurstaða rekstrar
-
07. maí 2013Bein útsending frá bæjarstjórnarfundi
-
30. apr 2013Sara Riel í Listasafninu 1. maí
-
30. apr 2013Menningarstund í kvöld
-
26. apr 2013Sundlaugin opin eftir framkvæmdir
-
26. apr 2013Björn Pálsson hlýtur umhverfisviðurkenninguna 2013