Matjurtagarðar fyrir íbúa

skrifað 04. jún 2012
byrjar 04. jún 2012
 

eru í boði í sumar eins og undanfarin ár og eru sem áður staðsettir við Sundlaugina Laugaskarði. Þeir eru nú tilbúnir til útplöntunar. Hver reitur er u.þ.b 20 m² á stærð en fólk getur valið sér stærri eða minni reit eftir því sem það treystir sér til að hirða um. Talsvert hefur verið um illgresi í garðinum og þarf því að fylgjast með sínum reit reglulega í sumar. Aðgangur að vatni er á staðnum sem og sandi, ef fólk óskar. Námskeiðið skólagarðar og kofasmíði mun hafa starfsemi í garðinum, þeir reitir hafa þegar verið teknir frá. Fólk getur því hæglega valið sér ómerkta reiti til að setja niður í. Matjurtagarðarnir eru á afskaplega veðursælum og góðum stað og er því ekki bara hægt að nýta þá til að rækta ýmislegt góðgæti heldur einnig til að kúpla sig aðeins frá. Það er svo gott fyrir sálina að sinna léttri garðvinnu í rólegu umhverfi og setja svo eigin framleiðslu á matardiskinn. Fyrir þá sem ekki hafa séð sér fært um að forrækta sitt kál sjálfir má benda á að garðplöntustöðvar bjóða upp á fjölbreytt úrval af forræktuðu grænmeti. Að lokum vil ég hvetja sem flesta til að nýta sér matjurtagarðanna okkar, því fleiri sem taka þátt því minni illgresisfræmyndun verður á svæðinu. Það bragðast heldur ekkert grænmeti eins og heimaræktað, það er alveg klárt mál. Með von um uppskerugott sumar! Bestu kveðjur, Guðrún Rósa, garðyrkjumaður Hveragerðisbæjar