Samningur endurnýjaður við Golfara
Endurnýjaður hefur verið þjónustusamningur á milli Hveragerðisbæjar og Golfklúbbs Hveragerðis. Samningurinn gildir til ársloka 2014 og er heildarverðmæti samningsins tæpar 19 milljónir.
Í lok ársins 2011 var endurnýjaður þjónustusamningur á milli Hveragerðisbæjar og Golfklúbbs Hveragerðis, GHG. Samningi þessum er ætlað að efla samstarf bæjaryfirvalda í Hveragerðisbæ og GHG og tryggja áfram öflugt íþrótta- og tómstundastarf fyrir börn og unglinga í Hveragerði samkvæmt stefnu bæjaryfirvalda þar um. Er samningnum ætlað að tryggja enn frekar starfsemi GHG, enda er bæjarstjórn Hveragerðisbæjar þeirrar skoðunar að GHG sinni öflugu forvarnarstarfi.
Samningurinn gildir til ársloka 2014 og er heildarverðmæti samningsins tæpar 19 milljónir.
Markmiðið með samningnum er að efla golfíþróttina í Hveragerði og að sem flestum gefist kostur á þátttöku í greininni án óhóflegrar gjaldtöku. Til að efla áhuga bæjarbúa á golfíþróttinni mun GHG standa fyrir golfnámskeiði fyrir börn og unglinga í samvinnu við Hveragerðisbæ. Einnig mun golfklúbburinn áfram sinna viðhaldi og umhirðu á knattspyrnuvöllum bæjarins.
Fleiri fréttir
-
22. feb 2012Öskudagsfjör
-
16. feb 2012Standa eða bíða eftir næsta vagni
-
16. feb 2012Framkvæmdir við Hamarshöll komnar í gang
-
13. feb 2012Útsvarsliðið hefur lokið keppni
-
07. feb 2012Dagur leikskólans í Undralandi
-
06. feb 2012Leikskóladagurinn haldinn hátíðlegur
-
03. feb 2012Mikil ánægja með "Skólahreysti"
-
31. jan 2012Hvergerðingar Norðurlandameistarar
-
18. jan 2012Þjónustusamningur við HSSH endurnýjaður
-
17. jan 2012Söngatriði Skjálftaskjóls áfram í USSS