Landsmót UMFÍ 50+ um næstu helgi
Fjölbreytt dagskrá er samhliða íþróttakeppninni á Landsmóti 50+ í Hveragerði um komandi helgi. Tónlistarviðburðir, sýningar og opnar vinnustofur um allan bæ. Enn er opið fyrir skráningar í einstaka greinar og er um að gera að kynna sér það á heimasíðu UMFÍ.
Mótssetning Landsmóts UMFÍ 50+ verður í íþróttahúsinu föstudagskvöldið 23. júní kl. 20.
Þar verður fjölbreytt dagskrá m.a. ávörp, keppni í línudansi og danssýning. Einnig mun Kvartett Vigdísar Ásgeirsdóttur leika létt og sumarleg lög en það eru þau: Vigdís Ásgeirsdóttir (söngur), Páll Sveinsson (trommur), Ingólfur Magnússon (bassi) og Vignir Þór Stefánsson (píanó) og Magnús Þór Sigmundsson leikur á gítarinn og syngur vel þekkt lag.
Eftir mótssetningu kl. 22 – 23 munu látúnsbarkinn Stebbi Jak. og uppistandarinn og gítarleikarinn Andri Ívars flytja öll bestu lög í heimi í Skyrgerðinni.
Fjölmennum og eigum góða kvöldstund saman. Aðgangur ókeypis.
Á laugardeginum 24. júní er Jónsmessugleði Norræna félagsins og munu Arnar Gísli og Magga Stefáns flytja norræna tónlist í Lystigarðinum kl. 13:30.
Í Listasafni Árnesinga mun Sönghópurinn Veirurnar undir stjórn Margrétar Stefánsdóttir, hita upp fyrir Ítalíuför með söng kl. 16 og eru allir velkomnir.
Um kvöldið verður kvöldverður og skemmtun á Hótel Örk og mun hljómsveitin PASS leika fyrir dansi til miðnættis. Hjörtur Benediktsson verður veislustjóri. Hægt er að kaupa miða hjá mótsstjórn í grunnskólanum fimmtudag og föstudag.
Á kortinu í dagskránni eru upplýsingar um sýningar og aðra viðburði helgarinnar.
Kynnið ykkur vel dagskrána hér!
Eldri fréttir
-
22. nóv 2019Jól í bæ - viðburðir
-
20. nóv 2019Flýtingu framkvæmda fagnað
-
20. nóv 2019Mun beiðni um viðræður verða samþykkt ?
-
18. nóv 2019Ás-Grundarsvæði, lýsing á deiliskipulagsáætlun.
-
05. nóv 2019Auka á aðgengi að þráðlausu neti
-
11. okt 2019Úthlutun fjölbýlishúsa í Kambalandi
-
09. okt 2019Aukin og betri þjónusta fyrir eldri íbúa Hveragerðisbæjar
-
07. okt 2019Það er einfalt að flokka lífrænt
-
29. sep 2019Nýbygging samþykkt við Ás, dvalar og hjúkrunarheimili
-
02. sep 2019Lýðheilsugöngur í Hveragerði